- Starfsemi og saga
- Sparisjóðurinn í Keflavík
- Sparisjóður Húnaþings og Stranda
- Sparisjóður Ólafsvíkur
- Sparisjóður Vestfirðinga
- Starfsfólk
- Stjórn
- Slitastjórn
- Afgreiðslustaðir
- Vextir
- Verðskrá
- Reiknivélar
- Fyrirspurnir
- Styrkir
- Ársskýrslur og samþykktir
- Bankaskrá
- Fjármálahugtök
- Lagalegur fyrirvari
- Meðferð tölvupósts
- Meðferð kvartana
SpKef sparisjóður er alhliða fjármálafyrirtæki er byggir á gömlum grunni. Sparisjóðurinn er sameinaður úr fjórum eldri sparisjóðum, Sparisjóðnum í Keflavík, Sparisjóði Vestfirðinga, Sparisjóði Húnaþings og Stranda og Sparisjóði Ólafsvíkur. Sparisjóðurinn rekur sextán afgreiðslur sem starfræktar eru á Suðurnesjum, Vestfjörðum, Hvammstanga og Ólafsvík. Höfuðstöðvar Sparisjóðsins eru í Keflavík. Starfsemi Sparisjóðsins er mjög fjölbreytt og hann býður upp á úrval vöru og þjónustu sem hentar breiðum hópi viðskiptavina hans.
Stefna
Sparisjóðurinn hefur það að takmarki að veita viðskiptavinum sínum góða og örugga ávöxtun sparifjár og alhliða þjónustu á sviði fjármála.
Stjórn
Ásta Dís Óladóttir, formaður, Helga Loftsdóttir, Valdimar Halldórsson, Anna María Pétursdóttir og Georg Gísli Andersen.
Skipulag
Stjórn Sparisjóðsins fer með æðstu stjórn í sjóðnum milli aðalfunda. Hún sér um að ráða Sparisjóðsstjóra sem er einn og hann ber ábyrgð á daglegum rekstri Sparisjóðsins. Starfsemi fyrirtækisins er skipt niður í tvö svið: Bankaþjónusta og Verðbréfaþjónusta. Skipurit samanstendur síðan af þremur stoðsviðum: Fjárhagssvið, Markaðssvið og Rekstrarsvið. Öll þessi svið heyra beint undir Sparisjóðsstjóra. Áhættustýring og útlánaeftirlit heyrir einnig beint undir Sparisjóðsstjóra. Innri endurskoðun heyrir síðan beint undir stjórn fyrirtækisins.
Markaðs- og þjónustumál
Starfsvæði Sparisjóðsins telst landið allt þar sem viðskiptavinir sjóðsins búa alls staðar á landinu. Sparisjóðurinn er þjónustufyrirtæki og leggur áherslu á það að hafa óskir viðskiptavinanna að leiðarljósi. Það er markmið Sparisjóðsins að halda áfram að þjóna viðskiptavinum sínum vel og halda núverandi markaðshlutdeild.


