FLÝTILEIÐIR
Fréttir » Staða fjárhagslegrar endurskipulagningar
22. janúar 2010
Staða fjárhagslegrar endurskipulagningar
Stjórnendur Sparisjóðsins í Keflavík hafa undanfarna mánuði leitt samningaviðræður sjóðsins um fjárhagslega endurskipulagningu. Viðræður hafa gengið hægar en upprunalega var gert ráð fyrir. Viðsemjendur eru tólf erlendar fjármálastofnanir, ríflega 50 innlendir kröfuhafar auk fulltrúa fjármálaráðuneytisins. Samningaviðræðurnar snúast m.a. um það að samræma sjónarmið kröfuhafa og fulltrúa ríkisins til að tryggja starfsemi Sparisjóðsins. Einnig þarf að ganga úr skugga um að samsetning efnahags sjóðsins sé með þeim hætti að hann geti áfram þjónustað viðskiptavini sína á starfssvæðum sjóðsins.
Samningaviðræður um fjárhagslega endurskipulagningu SpKef hafa farið fram á grundvelli laga nr. 125/2008 sem veita fjármálaráðuneytinu heimild til að leggja sparisjóðnum til nýtt stofnfé með það að markmiði að tryggja rekstur hans til framtíðar.
Það hefur komið fram í opinberri umræðu að endurskipulagningin muni leiða til þess að stofnfé núverandi stofnfjárhafa verður fært niður að hluta. Á þessari stundu liggur ekki fyrir hversu há niðurfærslan verður en gera má ráð fyrir að hún verði umtalsverð eins og hjá öllum öðrum sparisjóðum landsins sem ljúka fjárhagslegri endurskipulagningu með aðkomu ríkisins. Niðurstaða samningaviðræðna er háð samþykki Fjármálaeftirlits og Seðlabanka Íslands.
Áður en endurskipulagningin verður til lykta leidd mun stjórn sjóðsins boða til fundar stofnfjárhafa í samræmi við samþykktir sjóðins, þar sem tillaga um fjárhagslega endurskipulagningu verður lögð undir atkvæði stofnfjárhafa.
Það er mat stjórnenda sjóðsins að fjárhagsleg endurskipulagning Sparisjóðsins verði til lykta leidd á næstu vikum. Að henni lokinni mun Sparisjóðurinn í Keflavík uppfylla öll skilyrði laga um fjárhagslegan styrk og vera í aðstöðu til að nýta þau sóknarfæri sem eru á íslenskum fjármálamarkaði.


