Fréttir » Fyrirframgreiðsla lífeyrissparnaðar hækkuð
 
7. janúar 2010

Fyrirframgreiðsla lífeyrissparnaðar hækkuð

Alþingi hefur samþykkt lagafrumvarp fjármálaráðherra sem heimilar einstaklingum að taka út meira af séreignarlífeyrissparnaði sínum en áður var leyfilegt. Nú verður hægt að fá greiddar út allt að 1,5 milljón króna til viðbótar við þá einu milljón króna sem áður var unnt að taka út. 
 

Þar með er heimilt að taka út samanlagt 2,5 milljónir króna af séreignarsparnaði sínum svo fremi að séreignarsparnaðaður rétthafa hafi numið þessari upphæð við gildistöku laganna 1. janúar 2010.

Útgreiðslutímabilið verður allt að 23 mánuðir fyrir þá sem nýta sér báðar heimildirnar en lengd þess ræðst af heildarfjárhæð útgreiðslunnar. Þeir sem vilja nýta sér heimildina og eru með viðbótarlífeyrissparnað í Lífsvali Sparisjóðsins þurfa að sækja um fyrir 1. apríl 2011.
Stefnt er að því að hægt verði að taka á móti umsóknum frá og með 7. janúar á öllum þjónustustöðum Sparisjóðsins. Umsóknir þurfa að berast fyrir 12. janúar til að útgreiðsla geti átt sér stað 20. janúar.

Til baka