Ljósanótt í Sparisjóðnum
Sparisjóðsstarfsmenn ætla að skemmta sér og öðrum með aðstoð Magga úr Breiðbandinu, í dag föstudaginn 4. september á milli kl. 15:00 og 16:00, í tilefni Ljósanætur. Starfsmenn hafa gert ýmislegt sér og viðskiptavinum sínum til skemmtunar þessa vikuna, til að byggja upp stemmningu upp að hátíðarhöldunum. M.a. hefur verið sett upp ljósmyndasýning, þar sem sýndar eru myndir af starfsmönnum á aldrinum 1-5 ára, þriðjudagur var nammidagur, sem mældist mjög vel fyrir hjá viðskiptavinum jafnt sem starfsmönnum, og í gær drógu allir fram ljósaseríurnar sínar í tilefni setningar Ljósanætur. Punkturinn yfir i-ið er svo trall og skemmtilegheit í dag, en starfsmenn hafa einnig lagt sig fram um að mæta í hressilegum fötum (svart er bannað) og að vera með skemmtileg gleraugu!


