Fréttir » Unnið að fjárhagslegri endurskipulagningu
 
1. júlí 2009

Unnið að fjárhagslegri endurskipulagningu

Sparisjóðurinn í Keflavík líkt og margir aðrir sparisjóðir hefur sótt um eiginfjárframlag frá ríkinu samkvæmt ákvæði í neyðarlögunum svokölluðu frá því í október sl. sem heimilar stjórnvöldum að eigið fé sjóðsins verði aukið um allt að 20%. Unnið hefur verið að fjárhagslegri endurskipulagningu Sparisjóðsins vegna þessa í samstarfi við Fjármálaráðuneytið, Fjármálaeftirlitið og fleiri hagsmunaaðila. Sparisjóðurinn í Keflavík hefur ráðið til sín sérfræðing í tengslum við þessa vinnu og miðar henni vel. Vel hefur verið tekið í þær aðgerðir sem unnið er eftir til að bregðast við erfiðum og þröngum aðstæðum á íslenskum fjármálamarkaði. Sparisjóðirnir hafa alltaf byggt á persónulegri þjónustu og haft þarfir viðskiptavina og samfélagsins að leiðarljósi. Ljóst að þeir munu gegna lykilhlutverki við uppbyggingu fjármálakerfisins sem nú stendur fyrir dyrum og því er nauðsynlegt að vel takist til um að gera þá samkeppnishæfa í fjármálaumhverfi framtíðarinnar.


Til baka