Fréttir » Sparisjóðsstjóraskipti
 
2. júní 2009

Sparisjóðsstjóraskipti

Geirmundur Kristinsson, sparisjóðsstjóri Sparisjóðsins í Keflavík, lét formlega af störfum um
mánaðamótin. Við starfinu tók Angantýr V. Jónasson sem hefur síðustu misseri gegnt starfi
svæðisstjóra Sparisjóðsins í Keflavík á Vestfjörðum.

Tilkynnt var um þessa breytingu á aðalfundi Sparisjóðsins í apríl. Sparisjóðurinn í Keflavík
og Sparisjóður Vestfirðinga sameinuðust í árslok 2007 og lét Angantýr þá af störfum sem
sparisjóðsstjóri í Sparisjóði Vestfirðinga og tók við starfi svæðisstjóra.

Geirmundur mun starfa áfram hjá Sparsjóðnum næstu vikur, samhliða nýjum sparisjóðsstjóra.
Hann hefur starfað samfleytt hjá Sparisjóðnum í Keflavík í 44 ár, eða frá árinu 1965.

 

Til baka