Fréttir » Fjölmenni á aðalfundi Sparisjóðsins
 
24. apríl 2009

Fjölmenni á aðalfundi Sparisjóðsins

Aðalfundur Sparisjóðsins í Keflavík var haldinn miðvikudaginn 22. apríl í safnaðarheimili Keflavíkurkirkju. Fullt var út úr dyrum og voru nær þrjú hundruð manns á fundinum. Það sem helst bar til tíðinda var að Geirmundur Kristinsson, sparisjóðsstjóri, tilkynnti að hann myndi hætta eftir 44 ára starf í sparisjóðnum. Einnig urðu breytingar á stjórn þegar Þorsteinn Erlingsson sté úr stóli stjórnarformanns og Kristján Gunnarsson tók hans stöðu. 

Þorsteinn Erlingsson greindi frá því í ræðu sinni að á þeim tíma sem hann sat í stjórn Sparisjóðsins hafi verið slegið hvert afkomumetið á fætur öðru en árið 2008 sé líklega það versta í sögu Sparisjóðsins í Keflavík. Tap á rekstri sjóðsins nam 17 milljörðum króna á móti tæplega 2 milljarða hagnaði árið á undan. Þorsteinn tilkynnti að stjórn Sparisjóðsins hefði samið við Angantý Jónasson um að sinna starfi Sparisjóðsstjóra frá 1. júní til áramóta. Angantýr hefur sinnt starfi svæðisstjóra á Vestfjörðum.

Enginn arður var greiddur af stofnfé nýtt verður heimild til endurmats stofnfjár samkvæmt 67. grein laga um fjármálafyrirtæki.

Mikil umræða skapaðist að lokinni ræðu Geirmundar en í henni fór hann yfir þá stöðu sem sparisjóðirnar hafa þurft að líða frá bankahruninu. Ekkert hefur bólað á framlagi ríkisins til sparisjóðanna á meðan byggt er undir þrjá ríkisbanka og aðrar fjármálastofnanir. Úrdráttur úr ræðu Geirmundur fylgir hér fyrir neðan.

Ný stjórn var kosin á fundinum. Auk Kristjáns Gunnarssonar, sem áður er getið, voru kjörnir í stjórn þeir Garðar Ketill Vilhjálmsson sem jafnframt var kjörin varaformaður á fyrsta fundi stjórnarinnar eftir aðalfundinn. Aðrir í stjórn eru Margrét Ágústsdóttir sem er úr Keflavík eins og Kristján og Garðar, Heimir Ágústsson og Björgvin Sigurjónsson en þeir tveir síðastnefndu koma frá öðrum sparisjóðum sem sameinuðust Sparisjóðnum í Keflavík. Í varastjórn voru kosnir Kristinn Jónasson, Guðbrandur Einarsson, Óskar Elísson, Jón Axelsson og Ásdís Ýr Jakobsdóttir.

Úrdráttur úr ræðu Geirmundar

 


Til baka