Sparisjóðurinn í efsta sæti Íslensku ánægjuvogarinnar
Viðskiptavinir sparisjóðsins eru ánægðustu viðskiptavinir íslenskra fyrirtækja samkvæmt niðurstöðum mælinga Íslensku ánægjuvogarinnar sem kynnt var í gær. Vörumerki sparisjóðanna, Sparisjóðurinn, Byr og SPRON raða sér í þrjú efstu sætin í hópi fjármálafyrirtækja og er þetta 10. árið í röð sem sparisjóðirnir hreppa þá viðurkenningu.
Vaxandi ánægja er með þjónustu sparisjóðanna á milli ára en að sama skapi hafa bankarnir fallið í áliti í kjölfar hruns þeirra í haust. Að Íslensku ánægjuvoginni standa Stjórnvísi, Samtök iðnaðarins og Capacent, að því er segir í tilkynningu.
Íslenska ánægjuvogin hefur gert mælingar á ánægju viðskiptavina fjármálafyrirtækja allt frá árinu 1999 eða í áratug. Sparisjóðirnir hafa ævinlega lent ofar bönkunum í þessari mælingu en munurinn ekki verið ýkja mikill á milli þeirra. Nú bregður svo við að ánægja með þjónustu sparisjóðanna eykst á milli áranna 2007 og 2008 en ánægja með þjónustu bankanna þriggja fellur verulega í kjölfar hruns þeirra sl. haust.


