FLÝTILEIÐIR
Fréttir » Innistæður eru tryggðar að fullu
4. febrúar 2009
Innistæður eru tryggðar að fullu
Ríkisstjórn Íslands áréttar að innstæður í innlendum viðskiptabönkum og sparisjóðum og útibúum þeirra hér á landi eru tryggðar að fullu, segir í tilkynningu viðskiptaráðuneytisins.
„Með innstæðum er átt við allar innstæður almennra sparifjáreigenda og fyrirtækja sem trygging innstæðudeildar Tryggingasjóðs innstæðueigenda tekur til,“ segir í tilkynningu ráðuneytisins.


