FLÝTILEIÐIR
Fréttir » Fréttatilkynning frá SpKef, Byr og Spron
3. febrúar 2009
Fréttatilkynning frá SpKef, Byr og Spron
Viðræður um sameiningu Sparisjóðsins í Keflavík, Byrs og SPRON hafa staðið yfir frá því í byrjun desember og hafa samningsaðilar kannað hvort grundvöllur er fyrir sameiningu sparisjóðanna. Viðræðurnar hafa gengið vel og er nú beðið þess að sparisjóðirnir ljúki ársuppgjörum sínum svo halda megi þeim áfram.
Þær tímaáætlanir sem gerðar voru í upphafi viðræðnanna munu ekki nást m.a. vegna aðstæðna í íslensku efnahagslífi en gert var ráð fyrir að niðurstöður þeirra lægju fyrir á fyrstu vikum þessa árs. Engar nýjar tímasetningar liggja fyrir um framhaldið, en stefnt er að því niðurstaða liggi fyrir eins fljótt og hægt er.


