FLÝTILEIÐIR
Fréttir » Breyttar áherslur hjá Lífsvali vegna viðbótarlífeyrissparnaðar
29. október 2008
Breyttar áherslur hjá Lífsvali vegna viðbótarlífeyrissparnaðar
Vegna óvissu á alþjóðlegum fjármálamörkuðum hefur verið ákveðið að ráðstafa tímabundið öllum iðgjöldum í skuldabréfa- og hlutabréfaáherslu Lífsvals í verðtryggðan sparnað.
Ávöxtun verður sú sama og á verðtryggðum reikningum með hæstu vöxtum á hverjum tíma. Aðrar ávöxtunarleiðir hjá Lífsvali byggja nú þegar á verðtryggðum sparnaði og verður því ekki gerð breyting á þeim.
Um leið og ástand á fjármálamörkuðum verður stöðugra verður iðgjöldum varið að nýju til fjárfestinga í samræmi við upphaflegar óskir sjóðsfélaga. Jafnframt er verið að yfirfara fjárfestingarstefnu Lífsval með hliðsjón af breyttum aðstæðum og verður ný stefna kynnt öllum sjóðsfélögum um leið og hún liggur fyrir.


