Fréttir » Vegna gjaldeyrisviðskipta
 
14. október 2008

Vegna gjaldeyrisviðskipta

Allir sparisjóðir og bankar starfa eftir tilmælum frá Seðlabanka Íslands um forgangsafgreiðslu á gjaldeyri. Þeir sem hljóta forgang eru m.a. námsmenn erlendis.

Allar beiðnir um gjaldeyri eru afgreiddar með sama hætti hjá sparisjóðunum og hjá viðskiptabönkunum. Hjá sparisjóðunum eru beiðnirnar bornar undir fjárstýringu Icebank sem reynir að afgreiða þær eftir bestu getu. Að öðrum kosti verða þær áframsendar til Seðlabankans. Gjaldkerar og þjónustufulltrúar sparisjóðanna taka við gjaldeyrispöntunum ef um forgangsbeiðni er að ræða.

Á nokkrum stöðum, hefur það komið fyrir að gjaldkerar hafi tekið við pöntunum um gjaldeyri sem ekki eru í forgangi. Ekki er hægt að búast við því að pöntunin verði afgreidd.



Til baka