Fréttir » Námsstyrkir Sparisjóðsins
 
8. apríl 2009

Námsstyrkir Sparisjóðsins

Sparisjóðurinn í Keflavík auglýsir eftir umsóknum um styrki sem veittir verða félögum í Námsmannaþjónustu Sparisjóðsins.

Styrkirnir eru þrír, hver að upphæð 150 þúsund krónur. Einungis námsmenn er lokið hafa stúdentsprófi eða sambærilegu og eru að ljúka námi á háskóla- eða tækniskólastigi geta sótt um þessa styrki.

Umsóknum um styrkina ber að skila inn fyrir 20. maí næstkomandi ásamt viðeigandi gögnum um námsferil og stuttri greinagerð um hvernig viðkomandi ætlar að nota styrkinn.

Umsóknir sendist á namsmenn@spkef.is


Til baka