FLÝTILEIÐIR
Fréttir » Starfsemi Sparisjóðsins óbreytt
9. október 2008
Starfsemi Sparisjóðsins óbreytt
Sparisjóðurinn í Keflavík heldur úti hefðbundinni starfsemi þrátt fyrir hremmingar vikunnar. Allar afgreiðslur eru opnar svo og heimabanki og hraðbankar. Áhrifa frá útlöndum gætir ekki á rekstur sparisjóðsins eins og á stóru bankana og mun hann áfram sinna þörfum sinna viðskiptavina.
Margítrekað hefur verið að innlán séu trygg og fólki er ráðið frá að taka út seðla til geymslu annars staðar en á reikningum. Í því felst mikið óöryggi, vaxtatap og hugsanlegt eignatap því innstæðutrygging nær ekki til seðlaeignar. Allar innstæður á reikningum Sparisjóðsins falla undir umrætt tryggingarákvæði hvort sem það heitir Peningamarkaðsreikningur eða Framtíðarsjóður. Allt eru þetta reikningar sem njóta fullrar ábyrgðar og örugga vexti.


