FLÝTILEIÐIR
Fréttir » Yfirlýsing ríkisstjórnar: Innstæður eru tryggðar
6. október 2008
Yfirlýsing ríkisstjórnar: Innstæður eru tryggðar
Ríkisstjórnin hefur sent frá sér tilkynningu þar sem ítrekað er að innistæður sparifjáreigenda séu tryggðar. Yfirlýsingin er svohljóðandi:
„Ríkisstjórn Íslands hefur sent frá sér tilkynningu þar sem áréttað er að innstæður í innlendum viðskiptabönkum, sparisjóðum og útibúum þeirra hér á landi verða tryggðar að fullu.
Með innstæðum er átt við allar innstæður almennra sparifjáreigenda og fyrirtækja sem trygging innstæðudeildar Tryggingasjóðs innstæðueigenda tekur til.“


