Hagræðingar í Sparisjóðnum
Sparisjóðurinn í Keflavík hefur ný kynnt fyrsta áfangann í aðgerðum sínum til að bregðast við harðnandi árferði. Nauðsynlegt þykir að hagræða í rekstrinum og hefur verið leitast við að gera það þannig að það komi ekki niður á þjónustunni og að ekki sé gripið til uppsagna nema nauðsyn krefji.
Um næstu mánaðamót mun Sparisjóðurinn loka afgreiðslum sínum á Borðeyri og í Borgartúni. Síðasti afgreiðsludagur á Borðeyri verður 30. september en 3. október í Borgartúni.
Þá hefur verið ákveðið að breyta opnunartíma í nokkrum afgreiðslum sparisjóðsins á Vestfjörðum og munu þær breytingar taka gildi næstu áramót. Afgreiðslurnar á Tálknafirði, Bíldudal, Þingeyri , Flateyri og Súðavík verða því opnar frá því kl. 12:30 til kl. 16:00 alla virka daga. Þessi afgreiðslutími gildir jafnframt fyrir þjónustu Íslandspósts sem Sparisjóðurinn sinnir á þessum stöðum.
Fjármálafyrirtæki á Íslandi eru að fara í gegnum erfiða tíma og leitað er allra leiða til að bregðast við þeim vanda og er Sparisjóðurinn þar ekki undanskilinn. Með nýjum opnunartíma er hægt að ná fram sparnaði án þess að komi til verulegrar skerðingar á þjónustunni því símaþjónusta verður áfram til staðar frá kl. 9:15 til kl. 16:30. Afgreiðslurnar á Patreksfirði og Ísafirði munu halda óbreyttum opnunartíma og geta viðskiptavinir leitað þangað frá kl. 9:15 til 16.00. Afgreiðslan á Króksfjarðarnesi mun einnig halda sínum opnunartíma frá 11:00 - 16:00 auk þess að sinna Reykhólum eftir hádegi alla miðvikudaga. Starfsmenn sparisjóðsins munu leggja sig fram um að afgreiða flest mál símleiðis eða gegnum tölvupóst þann tíma sem lokað verður á framantöldum stöðum.


