Fréttir » Sparisjóðurinn á Ljósanótt
 
5. september 2008

Sparisjóðurinn á Ljósanótt

Sparisjóðurinn í Keflavík er aðalstyrktaraðili Ljósanæturhátíðarinnar sem nú er haldin í níunda sinn. Frá fyrstu Ljósanóttinni hefur Sparisjóðurinn stutt myndarlega við hátíðina og er engin breyting á nú.

Formleg setning Ljósanætur fór fram við hátíðlega athöfn hjá Myllubakkaskóla í gær og um kvöldið var boðið upp á dagskrá fyrir börn og unglinga. Ávaxtakarfan var sett á svið fyrir yngstu börnin og naut hún stuðnings Sparisjóðsins við þá uppsetningu.

Í dag verður boðið upp á tónlist og kaffi í afgreiðslu Sparisjóðsins í Keflavík þar sem Matti „Papi“ og Pétur „Jesús“ spila og syngja. Bylgjan mun einnig útvarpa síðdegisþætti sínum þaðan.

Á laugardeginum fer fram hið árlega Reykjanesmaraþon og er Sparisjóðurinn í Keflavík aðalstyrktaraðili hlaupsins. Dagskrá laugardagskvöldsins er í boði Sparisjóðsins og þar koma fram Buff, Ego og fleiri góð atriði. Hápunktur hátíðarinnar er síðan glæsilega flugeldasýning Björgunarsveitarinnar.

Hátíðinni er alls ekki lokið á laugardeginum því á sunnudeginum eru margir merkilegir viðburðir í boði og styrkir Sparisjóðurinn sýningu Sænska balletskólans sem er í Íþróttahúsi Njarðvíkur kl. 17 og tónleika Bylgju Dísar og Láru Rafnsdóttur í Bíósal Duushúsa.


Til baka