Fréttir » Sparisjóðurinn tekur Gæfuspor með UMFÍ
 
16. júní 2008

Sparisjóðurinn tekur Gæfuspor með UMFÍ

Gæfuspor er verkefni þar sem fólk 60 ára og eldri er hvatt til að fara út og ganga sér til ánægju og heilsubótar. UMFÍ stendur að þessu verkefni með öflugri aðkomu Sparisjóðsins.

Verkefnið mun hefjast á 5 stöðum á landinu fimmtudaginn 19. júní og í Reykjanesbæ verður gengið frá Sparisjóðnum í Keflavík kl. 10:00. Skráning hefst kl. 09:30 og  mun Sparisjóðurinn afhenda öllu göngufólki vandaðan jakka sem er merktur Gæfuspori til eignar. Aðrir staðir sem taka þátt í verkefninu að þessu sinni eru Borgarnes, Neskaupsstaður, Selfoss og Sauðárkrókur.

Í framhaldinu munu hóparnir ákveða hve oft og hvaðan þeir ganga og eins getur fólk valið sér tíma og staði þegar því hentar.  Aðalatriðið er að fara út að ganga á eigin forsendum, sér til ánægju í góðum hópi vina og félaga. Sérstakur bæklingur verður gefin út samhliða verkefninu með ýmsum hagnýtum upplýsingum fyrir göngufólk og mun hann liggja frammi í Sparisjóðnum og á fleiri stöðum.


Til baka