MiFID

Tilskipun um fjármálamarkaðinn (The Markets in Financial Instruments Directive)

Hvaða áhrif hefur þessi tilskipun fyrir viðskiptavini Sparisjóðsins?

Sækja MiFID Skjöl

Ný lög um verðbréfaviðskipti
Með nýjum lögum um verðbréfaviðskipti, sem gilda frá 1. nóvember 2007, er innleidd í íslenskan rétt tilskipun Evrópusambandsins um markaði fyrir fjármálagerninga (e. Markets in Financial Instruments Directive eða svokölluð MiFID-tilskipun). MiFID-tilskipunin nær til allra ríkja á EESsvæðinu, þ.e. 27 aðildarríkja Evrópusambandsins auk Íslands, Noregs og Liechtenstein. Með nýjum verðbréfaviðskiptalögum breytast ýmsar mikilvægar reglur sem lúta að því hvernig staðið skuli að viðskiptum með verðbréf. Reglunum er ætlað að vernda fjárfesta, auka gagnsæi og stuðla að virkari samkeppni og koma þannig viðskiptavinum til góða.

Á hverja hafa nýju lögin áhrif?
Breytingarnar hafa áhrif á alla þá einstaklinga og fyrirtæki (lögaðila) sem eiga í verðbréfaviðskiptum.

Hvert er markmiðið með löggjöfinni?
MiFID-tilskipunin er liður í áætlun Evrópusambandsins sem miðar að því að setja samræmdar reglur um neytendavernd fjárfesta og skapa sameiginlegan innri markað með fjármálaþjónustu. Lögð er áhersla á aukið eftirlit, faglega framkvæmd og upplýsingagjöf. Þá er löggjöfinni ætlað að tryggja að viðskiptavinir fjármálafyrirtækja, sem eiga í verðbréfaviðskiptum, fái ávallt viðeigandi upplýsingar og ráðgjöf.

Markmið MiFID-tilskipunarinnar er að auka neytendavernd fjárfesta. Tekið er mið af reynslu og þekkingu aðila sem stunda viðskipti á fjármálamörkuðum. Neytendavernd fjárfesta er mismikil og fer minnkandi eftir því sem reynsla og þekking á verðbréfaviðskiptum er talin meiri. Því eru fjárfestar flokkaðir í þrjá meginflokka:

  • Almenna fjárfesta
  • Fagfjárfesta
  • Viðurkennda gagnaðila

MiFID mun hafa áhrif á hvernig viðskipti fara fram hjá okkur. Samkvæmt reglunum er fjármálafyrirtækjum skylt að flokka alla sína viðskiptavini í ofangreinda flokka og tilkynna þeim hvaða flokki þeir tilheyra og hvaða þýðingu það hafi fyrir viðkomandi. Vernd viðskiptavina er mismikil eftir því hvaða flokki þeir tilheyra. Þjónustan verður því sniðin sem best að ákveðnum viðmiðunum svo sem þekkingu viðskiptavina á fjármálum, reynslu þeirra, áhættuþol og fjárfestingaráætlun. MiFID gerir fyrirtækjum skylt að tryggja að allar upplýsingar, þar með talin markaðssamskipti við viðskiptavini eða hugsanlega viðskiptavini, séu sanngjarnar, skýrar og ekki á nokkurn hátt misvísandi. Einnig að markaðssamskipti séu skýr til að tryggja enn frekar vernd viðskiptamanna.

Kynntu þér málið!

  1. Þú getur komið til okkar á Viðskiptastofu SpKef og fengið frekari upplýsingar
  2. Nánari upplýsingar má einnig finna á heimasíður Samtaka fjármálafyrirtækja (SFF) www.sff.is/mifid
  3. Fyrirspurnir má senda á vidskiptastofa@spkef.is og sff@sff.is . Svör við algengum spurningum verða birt á heimasíðu SFF www.sff.is
  4. Heimasíða Fjármálaeftirlitsins FME http://fme.is/?PageID=647