Viðskiptastofa

Viðskiptastofa Sparisjóðsins býður einstaklingum og fyrirtækjum fjölþætta þjónustu í fjármálum. Hjá sérfræðingum Viðskiptastofunnar getur þú fengið aðstoð við val á hentugum sparnaðarleiðum og við mat á einstökum fjárfestingum. Við sinnum verðbréfaviðskiptum þínum á einfaldan og öruggan hátt.

Hjá Viðskiptastofunni getur þú:

  • keypt og selt verðbréf á fyrirhafnarlítinn og öruggan hátt, bæði á innlendum og erlendum verðbréfamörkuðum
  • varðveitt öll innlend og erlend hlutabréf og önnur verðbréf skráð í Kauphöll Íslands
  • fengið yfirlit yfir markaðsstöðu og hreyfingar á verðbréfasafni þínu
  • fylgst með ávöxtun og árangri safnsins
  • losnað við áhyggjur af útdrætti húsbréfa og innlausnardögum spariskírteina
  • losnað við fyrirhöfn vegna útgefinna jöfnunarbréfa og greiðslu arðs

Viðskiptastofan veitir:

  • fjárfestingarráðgjöf sem veitt er af sérfræðingum Sparisjóðsins
  • örugga vörslu verðbréfa bæði rafrænna og bréfa í pappírsformi
  • aðstoð við val á hentugum sparnaðarleiðum og við mat á fjárfestingum
  • daglegt aðgengi að verðbréfasafni þínu
  • heildarlausnir í fjárstýringu fyrirtækja, þ.á.m. fjármögnun, innlán, gjaldeyrisviðskipti og afleiðusamningar.
  • möguleika á eignastýringu eigin safns
  • aðgengi að kaup- og sölutilboðum dagsins í Kauphöll Íslands
  • aðgengi að viðskiptum dagsins í Kauphöll Íslands
  • persónulega þjónustu

Til að nálgast upplýsingar eða þjónustu ráðgjafa Viðskiptastofu Sparisjóðsins, þá er hægt að senda þeim tölvupóst vidskiptastofa@spkef.is, hafa samband í síma 421 6600 eða senda með faxi 421 6678.