Útlán

Fjölþættar fjármögnunarleiðir
Mikilvægt er fyrir fyrirtæki að hafa gott aðgengi að fjármagni til að viðhalda vexti og framþróun og leitast Sparisjóðurinn við að uppfylla þarfir fyrirtækja og rekstraraðila við fjármögnun. Við ákvörðun um lánveitingu eru skoðaðir ársreikningar, rekstrar- og greiðsluáætlanir og aðrar upplýsingar úr rekstri fyrirtækja eftir því sem þurfa þykir. Einnig er horft á feril viðskipta við Sparisjóðsins með tilliti til umfangs og skilvísi. Sparisjóðurinn býður skammtíma- og langtímafjármögnun í margs konar formi með innlendu sem og erlendu lánsfé.

Yfirdráttarlán
Yfirdráttarheimild á tékkareikning fyrirtækis til að jafna sveiflur í tekjum og útgjöldum.

Skuldabréfalán
Skuldabréfalán er hægt að fá bæði verðtryggð og óverðtryggð. Skuldabréf geta verið með ábyrgðarmönnum eða fasteignaveði og/eða veði í rekstrartækjum sem tengjast rekstri fyrirtækja.

Víxlar
Víxlar eru yfirleitt notaðir ef um skammtímafjármögnun er að ræða, þ.e. 3 mánuði eða skemur.

Veltufjármögnun
Veltufjármögnun felst í láni með veði í safni viðskiptakrafna fyrirtækis sem settar eru í innheimtu hjá innheimtuþjónustu Sparisjóðsins. Lánið er í formi reikningsláns á tékkareikningi sem stofnaður er sérstaklega í þessu skyni. Reikningurinn er án tékkheftis og úttekt af honum fer fram í gegnum fyrirtækjafulltrúa Sparisjóðsins.

Eignarleiga
Flestir rekstraraðilar þurfa reglulega að endurnýja tækjakost sinn eða bæta við tækjum. SP-Fjármögnun, dótturfyrirtæki Sparisjóðsins, sérhæfir sig í fjármögnun atvinnutækja.

Erlend lán
Sparisjóðurinn býður fyrirtækjum lán í erlendum gjaldmiðlum. Vextirnir reiknast út frá LIBOR vöxtum sem eru í gildi hverju sinni.

Kaup viðskiptabréfa
Sparisjóðurinn tekur að sér að kaupa viðskiptabréf að ákveðnum skilyrðum uppfylltum og liðka þannig til fyrir viðskiptum.

Ef þú vilt nánari upplýsingar um útlán og fjármögnun hjá Sparisjóðnum getur þú sent okkur fyrirspurn, haft samband við Þjónustuver í síma 421 6600 eða leitað upplýsinga hjá fyrirtækjafulltrúum.