VSK reikningur - og þú átt alltaf fyrir virðiskaukaskattinum
Eins og nafnið gefur til kynna er VSK-reikningurinn sérstaklega hugsaður til að halda utan um þá fjárhæð sem greiða á í virðisaukaskatt annan hvern mánuð. Þetta á að gera fyrirtækjum og sjálfstæðum atvinnurekendum kleift að halda þeirri fjárhæð sem greiða á í virðisaukaskatt aðskildri frá öðrum rekstri fram að gjalddaga.
Fyrir utan að einfalda allt bókhald eru helstu kostirnir að reikningurinn ber háa vexti og er alltaf laus til útborgunar í kringum VSK-gjalddaga, þ.e. upphæðin ávaxtast á milli gjalddaga og innstæðan er fyrir hendi þegar greiða á virðisaukaskattinn.
Helstu kostir VSK-reiknings:
- há ávöxtun
- án lágmarksinnstæðu
- tímabilsbundinn reikningur
- laus í 7 daga kringum VSK-gjalddaga
- óverðtryggður
Sýndu fyrirhyggju í rekstri á þínu fyrirtæki, láttu ekkert koma þér á óvart.
Ef þú vilt nánari upplýsingar um VSK-reikning getur þú sent okkur fyrirspurn, haft samband við Þjónustuver í síma 421 6600 eða leitað upplýsinga hjá þjónustufulltrúum.
Sjá vaxtatöflu innlána Sparisjóðsins hér.


