PM-reikningur

PM-reikningur - háir vextir, öryggi og sveigjanleiki

Peningamarkaðsreikningur Sparisjóðsins er afburða góður kostur fyrir fyrirtæki sem leita eftir hagkvæmri lausafjárávöxtun og einstaklinga sem vilja njóta hárra vaxta peningamarkaðarins og öryggis og sveigjanleika sparireiknings. Lágmarks innstæða á Peningamarkaðsreikningi Sparisjóðsins er 250.000 kr.

Öryggi og sveigjanleiki sparireiknings
Einn meginkostur Peningamarkaðsreiknings Sparisjóðsins er hve sveigjanlegir skilmálar hans eru:

  • Aðeins 10 daga binding - eftir það er hann alltaf laus til úttektar.
  • Engin þjónustugjöld, innlausnargjald eða aðrar þóknanir.

Að auki njóta eigendur Peningamarkaðsreiknings margháttaðrar þjónustu Sparisjóðsins um leið og þeir byggja upp traust viðskiptasamband.

Ef þú vilt nánari upplýsingar um Peningamarkaðsreikning Sparisjóðsins getur þú sent okkur fyrirspurn, haft samband við Þjónustuver í síma 421 6600 eða leitað upplýsinga hjá þjónustufulltrúum.

Sjá vaxtatöflu innlána Sparisjóðsins hér.