Netreikningur

Sparisjóðurinn býður nú viðskiptavinum sínum upp á Netreikning sem er hávaxta sparnaðarleið í Heimabanka. Reikningurinn er óverðtryggður og óbundinn og fara vextirnir eftir innistæðu hans*. Fjárhæðin er ávallt laus til útborgunar og millifærsla í Heimabankanum er gjaldlaus.

Ekki er gerð krafa um lágmarksfjárhæð á reikningnum - vextirnir koma strax með fyrstu krónunni og er ávöxtunin færð inn á í árslok. Sjá vaxtatöflu Sparisjóðsins hér

Netreikningur er frábær kostur fyrir þá sem vilja sjálfir halda utan um sinn sparnað og sýsla með hann milliliðalaust. Hægt er að nálgast reikninginn allan sólarhringinn.

Eingöngu er hægt að stofna reikninginn hér á vefnum.

Umsókn

*Samkvæmt vaxtatöflu Sparisjóðsins.