Lífsval

Fjárhagslegt öryggi eftirlaunaáranna er okkur öllum mikilvægt. Flestir hafa tök á því að viðhalda eða auka lífsgæði sín við starfslok með því að hefja viðbótarlífeyrissparnað og tryggja þannig fjárhagslega framtíð sína með því að stofna sinn eigin lífeyrissjóð. Með viðbótarlífeyrissparnaði er átt við:

  • framlag launþega (hámark 4% af heildarlaunum)
  • framlag launagreiðanda (allt að 2% af heildarlaunum)

Lífsval hefur í för með sér skattalegt hagræði auk þess sem mótframlag launagreiðanda og ríkis felur í sér launahækkun.

Með tímanum getur þessi eign orðið veruleg, því skiptir máli að byrja snemma. Gera má ráð fyrir að þáttur almannatrygginga í tekjum okkar minnki í framtíðinni og því er enn mikilvægara að leggja reglulega til hliðar og mynda þannig grunn að fjárhagslegu öryggi þegar starfsævinni lýkur.

Helstu kostir Lífsvals:

  • mótframlag launagreiðanda
  • tekjuskattsfrestun
  • sparnaðurinn erfist
  • sveigjanleg starfslok
  • fjármagns-, eigna- eða erfðaskattsfrelsi
  • vaxta- og barnabætur skerðast ekki
  • möguleiki á sömu eða meiri lífsgæðum
  • við örorku er hægt að fá sparnaðinn greiddan

Ef þú vilt spyrja okkur nánar út í Lífsval sendu okkur fyrirspurn, hafðu samband við Þjónustuver í síma 421 6600 eða leitaðu upplýsinga hjá þjónustufulltrúum.

Sjá vaxtatöflu innlána Sparisjóðsins hér.

Taktu ákvörðun núna

Nánar um Lífsval

Reikna sparnað

Umsókn

Lífeyrissparnaður Sparisjóðsins
Túngötu 3, 580 Siglufirði
Reikningsnúmer: 1102 - 26 - 287
Kennitala: 470306-9630
Fax: 460 1919
Rafrænar skilagreinar:
skilagreinar@arion.is