Fjármögnunarfyrirgreiðsla í ýmsu formi
SP-fjármögnun, dótturfyrirtæki sparisjóðanna, sérhæfir sig í fjármögnun atvinnutækja. Það veitir fyrirtækjum, stofnunum og einstaklingum í rekstri fjármögnunarfyrirgreiðslu í formi kaupleigusamninga og fjármögnunarleigusamninga vegna kaupa á vélum, tækjum og öðrum búnaði til rekstrar.
Fjármögnun atvinnutækja
Það er mikilvægt að endurnýja vélar og tæki á réttum tíma þannig að viðhaldskostnaður fari ekki úr hófi fram. SP-Fjármögnun býður allt að 100% fjármögnun á atvinnutækjum og er eignarréttur fyrirtækisins í viðkomandi tæki helsta tryggingin fyrir endurgreiðslu samningsins.
Ef um fulla fjármögnun er að ræða þarf, í flestum tilvikum, frekari tryggingar. Meginreglan er sú að ef tæki er fjármagnað að fullu er krafist baktryggingar sem nemur 50% af kaupverði tækisins. Aftur á móti nægir tækið sjálft sem trygging þegar um hlutafjármögnun er að ræða og fjármögnunin fer ekki yfir 65% af kaupverði.
Eignarleiga
Eignarleiga er samheiti yfir fjármögnunarleigu og kaupleigu.
Munurinn á kaup- og fjármögnunarleigu felst einkum í mismunandi bókhaldslegri og skattalegri meðhöndlun, en kjör eru hin sömu.
Þessi fjármögnunarform eru ólík beinum lánum að því leyti að þau byggjast á því að SP-Fjármögnun hf. kaupir vél eða tæki sem viðskiptavinurinn óskar eftir og leigir honum til fyrirfram ákveðins tíma.
Fjármögnunarleiga
Ef gerður er fjármögnunarleigusamningur er öll leigugreiðslan gjaldfærð og tækið í raun afskrifað að fullu á leigutímanum. Þannig næst fram frestun á greiðslu skatts, þ.e. ef leigutíminn er styttri en venjubundinn afskriftartími tækisins. Leigugreiðslur reiknast af verði tækisins án virðisaukaskatts og leggst virðisaukaskattur á hverja greiðslu.
Kaupleiga
Þegar tæki er tekið á kaupleigu er það eignfært í bókum leigutaka á leigutímanum og afskrifað hjá honum samkvæmt heimildum skattalaga. Þó færist lögformlegt eignarhald tækisins ekki til leigutakans fyrr en að leigutíma loknum þegar lokagjaldið hefur verið greitt. Leigan reiknast af kaupverði án virðisaukaskatts, en leigutaki greiðir allan virðisaukaskatt í upphafi leigutímans. Í stað þess að gjaldfæra leigugreiðslurnar, eins og í fjármögnunarleigu, er vaxtahluti greiðslunnar einungis gjaldfærður.
Rekstrarleiga
SP-Fjármögnun hf. býður rekstraraðilum bifreiðar til leigu í samvinnu við bílaumboðin. Ólíkt því sem tíðkast í öðrum fjármögnunarleiðum eignast leigutaki ekki bifreiðina að leigutíma loknum heldur skilar henni aftur til viðkomandi bílaumboðs. Leigutími er oftast 2-3 ár og er öll þjónusta við bílinn, svo sem smurþjónusta og hjólbarðaskipti, innifalin í leigugjaldinu.
Ef þú vilt nánari upplýsingar um fjármögnun atvinnutækja hjá Sparisjóðnum í Keflavík getur þú sent okkur fyrirspurn, haft samband við Þjónustuver í síma 421-6600 eða leitað upplýsinga hjá fyrirtækjafulltrúum.


