Erlend viðskipti

Alhliða inn- og útflutningsþjónusta

Sparisjóðurinn býður viðskiptavinum sínum gjaldeyrisþjónustu, jafnt vegna innflutnings sem og útflutnings og annast milligöngu um þau viðskipti við útlönd sem viðskiptavinir þarfnast á hverjum tíma. Sparisjóðurinn er með öflug tengsl við banka, sparisjóði og fyrirtæki í öllum helstu viðskiptalöndum Íslendinga og getur tekið að sér alhliða gjaldeyrisviðskipti fyrir viðskiptavini sína.

Helstu þjónustugreinar Sparisjóðsins í alþjóðaviðskiptum eru þessar:

Erlendar ábyrgðir
Mikið hagræði er fólgið í því fyrir fyrirtæki að hafa yfirsýn yfir þær ábyrgðir sem stofnað hefur verið til og geta einnig fylgst með ferli þeirra.

  • Ábyrgðir/Letters of Credit: Ábyrgðir eru veittar bæði vegna inn- og útflutnings.
  • Greiðsluábyrgðir/Guarantees: Greiðsluábyrgðir eru veittar t.d. vegna innflutnings á vörum eða þjónustu eða vegna annarra samninga við erlenda aðila sem þarfnast greiðslutryggingar frá banka.
  • Innheimtur/Documentary Collections: Sparisjóðurinn býður viðskiptavinum sínum innheimtuþjónustu jafnt vegna inn- og útflutnings

Gjaldeyrisyfirfærslur
Þessi þáttur felur í sér sendingu og móttöku fjármuna frá útlöndum.

  • Bankatékkar (Bankers Drafts) í öllum helstu gjaldmiðlum, til greiðslu á vörum og þjónustu.
  • Alþjóðlegar ávísanir (IMO) í USD, GBP og EUR auk ferðatékka í öllum helstu myntum.
  • Símgreiðslur (SWIFT) þegar taka þarf við eða koma greiðslum fljótt og örugglega til viðtakanda, hvar sem hann er staddur í veröldinni. Í boði er rafræn samskiptaleið um Fyrirtækjabanka Sparisjóðsins.
  • Moneygram peningasendingar eru hraðvirk, örugg, auðveld, áreiðanleg og hentug leið til að senda eða fá senda peninga hvaðanæva úr heiminum á einungis örfáum mínútum. Fáðu frekari upplýsingar hér.

Erlend lán
Erlend lán eru veitt bæði til skamms tíma, t.d. í stað greiðslufrests frá seljanda erlendis, og einnig til lengri tíma, t.d. vegna fjárfestinga.

Ýmis þjónusta
Undir þennan lið heyrir þjónusta vegna út- og innflutnings, t.d. greiðslufallstryggingar, afreikningur krafna á erlenda kaupendur (kröfukaup) og hverskyns upplýsingaöflun sem varðar alþjóðaviðskipti.

Ef þú vilt nánari upplýsingar um erlend viðskipti hjá Fyrirtækjaþjónustu Sparisjóðsins getur þú sent okkur fyrirspurn, haft samband við Þjónustuver í síma 421 6600 eða leitað upplýsinga hjá fyrirtækjafulltrúum.