FLÝTILEIÐIR
Greiðsluvandi
Kæru viðskiptavinir,
Þeir sem telja sig þurfa frekari aðstoð vegna greiðsluvanda en greiðslujöfnun lána eru beðnir um að fylla út umsókn vegna greiðsluvanda hér og koma henni undirritaðri, ásamt nauðsynlegum fylgiskjölum, til Sparisjóðsins.
Athugið að skjalið er PDF form sem hægt er að skrifa inn í á tölvutæku formi en ekki vista. Því biðjum við fólk um að prenta út eintak bæði fyrir sig og til að fara með í Sparisjóðinn.
Ef einhverjar spurningar vakna eru þjónustufulltrúar Sparisjóðsins alltaf til taks og einnig er hægt að hringja í þjónustusímann: 421 6600.
Í sameiningu reynum við að leysa úr vandanum.


