Skilmálar vegna inngöngu í Vildarþjónustu Sparisjóðsins
1) Um þjónustuna
Vildarþjónusta Sparisjóðsins er þjónusta sem veitir viðskiptamönnum ávinning og fríðindi vegna viðskipta við Sparisjóðinn og er hún þeim að kostnaðarlausu. Með ávinningi og fríðindum er m.a. átt við tilboð og þjónustu samstarfsaðila Sparisjóðsins. Vildarþjónustu er skipt í þrjá flokka sem heita Silfurþjónusta, Gullþjónusta og Platinumþjónusta. Allir viðskiptamenn Sparisjóðsins sem uppfylla neðangreind skilyrði fyrir hverja þjónustu geta skráð sig í þá þjónustu.
2) Skilyrði fyrir Silfurþjónustu Sparisjóðsins
Allir viðskiptamenn Sparisjóðsins sem eru 16 ára og eldri geta gengið í Silfurþjónustu Sparisjóðsins, enda uppfylli þeir skilyrði þessarar greinar auk skilyrða 5. gr. skilmála þessara. Það er skilyrði fyrir inngöngu í Silfurþjónustuna að einstaklingar eldri en 16 ára séu í virkum launaviðskiptum við Sparisjóðinn (mánaðarlegar innborganir launa/tekna) ásamt því að vera með debetkort. Ef um aukakort er að ræða þarf handhafi aukakorts að velta mánaðarlega inn á reikninginn launum eða öðrum tekjum. Jafnframt má viðskiptamaður ekki vera á vanskila- og/eða lokanaskrá.
3) Skilyrði fyrir Gullþjónustu Sparisjóðsins
Allir viðskiptamenn Sparisjóðsins sem eru fjárráða geta gengið í Gullþjónustu Sparisjóðsins, enda uppfylli þeir skilyrði þessarar greinar auk skilyrða 5. gr. skilmála þessara. Það er skilyrði fyrir inngöngu í Gullþjónustuna að einstaklingar sem eru fjárráða séu í virkum launaviðskiptum við Sparisjóðinn (mánaðarlegar innborganir launa/tekna) ásamt því að vera með Gulldebetkort. Ef um aukakort er að ræða þarf handhafi aukakorts að velta mánaðarlega inn á reikninginn launum eða öðrum tekjum. Að auki þarf viðskiptamaður að vera með lágmarksveltu á ári sem er 2.000.000 kr. Jafnframt má viðskiptamaður ekki vera á vanskila- og/eða lokanaskrá.
4) Skilyrði fyrir Platinumþjónustu Sparisjóðsins
Allir viðskiptamenn Sparisjóðsins sem eru fjárráða geta gengið í Platinumþjónustu Sparisjóðsins, enda uppfylli þeir skilyrði þessarar greinar auk skilyrða 5. gr. skilmála þessara. Það er skilyrði fyrir inngöngu í Platinumþjónustuna að einstaklingar sem eru fjárráða séu í virkum launaviðskiptum við Sparisjóðinn (mánaðarlegar innborganir launa/tekna) ásamt því að vera með Platinumdebetkort. Ef um aukakort er að ræða þarf handhafi aukakorts að velta mánaðarlega inn á reikninginn launum eða öðrum tekjum. Að auki þarf viðskiptamaður að vera með lágmarksveltu á ári sem er 6.000.000 kr. og eiga innlán hjá Sparisjóðinum að upphæð 1.000.000 kr. eða meira (lífeyrissparnaður ekki meðtalinn). Jafnframt má viðskiptamaður ekki vera á vanskila- og/eða lokanaskrá.
5) Auk þess sem fram kemur í liðum 2, 3 og 4 þarf viðskiptamaður að vera með virk viðskipti í fjórum af eftirfarandi þjónustuþáttum til þess að fá inngöngu í Vildarþjónustu Sparisjóðsins:
- Greiðsluþjónusta
- Innlán > 250.000 kr. (á ekki við viðskiptavini sem fara í Platinumþjónustu Sparisjóðsins)
- Útlán > 250.000 kr
- Viðbótarlífeyrissparnaður
- Reglulegur sparnaður
- Kreditkort (Silfur-, Gull- eða Platinumkreditkort)
- Gullárin
- Söfnun í sjóði sparisjóða
- Heimabanki
- GSM-banki
6) Niðurfelling skráningar í Vildarþjónustu Sparisjóðsins
Uppfylli viðskiptamaður ekki fyrrgreind skilyrði fyrir skráningu í Vildarþjónustu Sparisjóðsins, fellur skráning niður án nokkurra tilkynninga eða fyrirvara.
7) Breyting á skilmálum/niðurfelling þjónustu
Skilmálum þessum má breyta án nokkurs fyrirvara. Bæði þannig að einstökum ákvæðum sé breytt eða þau felld niður. Vildarþjónustu Sparisjóðsins má fella niður án fyrirvara. Breyti Sparisjóðurinn eða felli niður einstök ákvæði skilmála þessara eða felli Sparisjóðurinn niður þjónustu þessa í heild sinni, falla niður öll réttindi viðskiptamanna til þjónustunnar skv. hinum breyttu/niðurfelldu ákvæðum í samræmi við ákvörðun Sparisjóðsins um breytingu og/eða niðurfellingu.
8) Miðlun upplýsinga til samstarfsaðila
Með undirritun minni á umsókn þessa veiti ég Sparisjóðnum leyfi til að veita aðilum sem Sparisjóðurinn hefur gert samninga við, svokölluðum samstarfsaðilum Sparisjóðsins, aðgang að þeim upplýsingum sem til þarf til að staðfesta það að ég sé í Vildarþjónustunni þegar ég óska eftir að nýta mér tilboð viðkomandi samstarfsaðila, þ.e. að undirritaður sé í viðskiptum við Sparisjóðinn og hvort ég sé aðili í Silfurþjónustu, Gullþjónustu eða Platinumþjónustu Sparisjóðsins.
9) Vinnsla persónuupplýsinga og persónuvernd
Sparisjóðnum er nauðsynlegt og ber lagaskylda til að vinna persónuupplýsingar um viðskiptamenn sína til að gegna hlutverki sínu sem fjármálafyrirtæki og tryggja öryggi í fjármálaþjónustu. Sparisjóðurinn ber almennt ábyrgð á vinnslu og meðferð persónuupplýsinga. Þær upplýsingar sem um ræðir eru m.a. nafn, kennitala, heimilisfang og upplýsingar um viðskipti viðskiptamanns. Auk þess er Sparisjóðnum heimilt að miðla persónuupplýsingum til vinnsluaðila, aðila sem gert hafa samstarfssamning við Sparisjóðinn, ábyrgðarmanns að skuld viðskiptavinar eða annarra aðila sem viðskiptavinur heimilar. Persónuupplýsingar um viðskiptamann eru varðveittar á meðan hann er í viðskiptum, eins lengi og lög mæla fyrir um eða viðskiptahagsmunir Sparisjóðsins krefjast þess og málefnaleg ástæða þykir til. Viðskiptamaður á samkvæmt lögum um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga rétt á vitneskju um þær persónuupplýsingar sem unnið er með eða hefur verið unnið með hjá Sparisjóðnum. Einnig á hann rétt á að rangar eða villandi persónuupplýsingar séu leiðréttar eða að þeim sé eytt.
10) Þagnarskylda
Sparisjóðurinn ábyrgist að farið verði með upplýsingar í samræmi við reglur um þagnarskyldu fjármálafyrirtækja, sbr. 58. gr. laga nr. 161/2002. Sparisjóðurinn heitir því einnig að aðgangur að upplýsingum verði einungis veittur þeim aðilum sem nauðsynlega þurfa vegna starfa sinna.


