Vaxtavelta

Vaxtavelta - góð og örugg ávöxtun án bindingar

Vaxtavelta Sparisjóðsins er óverðtryggður innlánsreikningur fyrir einstaklinga og fyrirtæki sem vilja góða og örugga ávöxtun á fjármuni sína án bindingar. Sérstaða Vaxtaveltu felst í háum vöxtum, engum binditíma höfuðstóls og möguleika á vaxtavöxtum.

  • Vextir, sem ákveðnir eru í byrjun hvers ársfjórðungs, eru færðir á reikninginn í lok hvers ársfjórðungs og geta þá verið lausir til ráðstöfunar
  • Höfuðstóllinn er alltaf laus, en sé tekið út innan 90 daga frá innborgun, greiðist 0,9 % úttektargjald af úttektarfjárhæð, sem dregst af næstu vaxtainnborgun
  • Lágmarksinnistæða er kr. 500.000,-

Ef þú vilt nánari upplýsingar um Vaxtaveltu getur þú sent okkur fyrirspurn, haft samband við Þjónustuver í síma 421 6600 eða leitað upplýsinga hjá þjónustufulltrúum.

Sjá vaxtatöflu innlána Sparisjóðsins hér.