Tromp

Ef þú vilt ekki binda sparifé þitt en njóta samt öruggrar ávöxtunar á sparifé henta Tromp reikningar sérlega vel. Þú getur valið um þann binditíma sem hentar þér best og ávallt treyst því að sparifé þitt beri háa vexti.

Laus Tromp reikningur
Hentar þeim sem vilja nota sparireikning sem veltureikning eða launareikning. Reikningurinn er óverðtryggður og og enginn binditími en það fé sem liggur óhreyft innan mánaðar ber hærri vexti.

Bundnir Tromp reikningar
TROMP reikningar eru óverðtryggðir, bundnir reikningar í 12, 24, 36, 48 og 60 mánuði, sem bera háa vexti. Innistæða reikninganna er ávallt laus til úttektar gegn greiðslu úttektargjalds. Að loknum binditíma greiðist ekki úttektargjald. Einnig er hægt að velja Trompreikning sem er ávallt laus og án úttektargjalds.

Vextir alltaf lausir til úttektar
Vextir leggjast við einu sinni á ári, í desemberlok, og eru þeir alltaf lausir til úttektar.

Ef þú vilt nánari upplýsingar um Tromp getur þú sent okkur fyrirspurn, haft samband við Þjónustuver í síma 421 6600 eða leitað upplýsinga hjá þjónustufulltrúum.

Sjá vaxtatöflu innlána Sparisjóðsins hér.