Skipulagður sparnaður

Með skynsemi og fyrirhyggju er hægt að hafa góð tök á fjármálum heimilisins og koma sér upp góðum varasjóði fyrir framtíðina.

Skipulagður sparnaður
Sparisjóðurinn býður þér auðvelda og þægilega leið til að spara skipulega og aðstoðar þig við að setja þér markmið í sparnaði. Með því að nýta þér Skipulagðan sparnað stuðlar þú að góðu skipulagi á fjármálum þínum og getur aukið sparifé þitt án teljandi fyrirhafnar.

Í samráði við þjónustufulltrúa Sparisjóðsins finnur þú heppilegan innlánsreikning og gerir samning um að láta skuldfæra ákveðna fjárhæð reglulega af launareikningi þínum eða öðrum reikningum. Þjónustufulltrúar Sparisjóðsins ráðleggja þér hvernig heppilegast er að ávaxta spariféð að teknu tilliti til binditíma og skattlagningar.

Sveigjanleiki
Þó að þú hafir gert samning við Sparisjóðinn um Skipulagðan sparnað er þér heimilt að draga greiðslu eða sleppa úr greiðslum inn á sparnaðarreikninginn. Slíka breytingu þarf einungis að tilkynna Sparisjóðnum með dags fyrirvara.

Einfalt og þægilegt
Dæmi um sparnað:

  • Ef þú leggur 5.000 kr. fyrir mánaðarlega í 10 ár áttu 774.960 kr. miðað við 5% raunvexti.
  • Ef þú leggur 10.000 kr. fyrir mánaðarlega í 10 ár áttu 1.549.921 kr. miðað við 5% raunvexti.

Sjá vaxtatöflu innlána Sparisjóðsins hér.