SP12

Viltu fá vextina greidda mánaðarlega?

Sparisjóðurinn býður nú viðskiptavinum sínum upp á SP12 sem er hávaxta sparnaðarleið í Heimabanka þar sem vextir greiðast mánaðaðarlega. Hægt er að velja á milli þess að fá vextina greidda inn á SP12 og fá þá vaxtavexti eða taka áunna vexti út mánaðarlega. Reikningurinn er óverðtryggður og óbundinn og fara vextirnir eftir innistæðu hans*. Fjárhæðin er ávallt laus til útborgunar og millifærsla í Heimabankanum er gjaldlaus.

Ekki er gerð krafa um lágmarksfjárhæð á reikningnum - vextirnir koma strax með fyrstu krónunni og greiðast vextir 12 sinnum á ári. Sjá vaxtatöflu Sparisjóðsins hér.

SP12 er frábær kostur fyrir þá sem vilja sjálfir halda utan um sinn sparnað og sýsla með hann milliliðalaust. Hægt er að nálgast reikninginn allan sólarhringinn.

Eingöngu er hægt að stofna reikninginn hér á vefnum.

Umsókn

*Samkvæmt vaxtatöflu Sparisjóðsins - Ársávöxtun miðast við að vextir séu látnir liggja óhreyfðir inni á SP12 í eitt ár.