EINSTAKLINGAR
Framtíðarreikningur
Framtíðarreikningur er góður kostur fyrir mömmur, pabba, afa, ömmur og alla þá sem vilja leggja góðan grunn að framtíð barns.
Reikningurinn ber hæstu vexti almennra innlánsreikninga Sparisjóðsins (sjá vaxtatöflu innlána Sparisjóðsins hér). Hægt er að stofna Framtíðarreikning fyrir börn yngri en 15 ára og er reikningurinn bundinn til 18 ára aldurs. Reikningurinn er verðtryggður.
Kynntu þér kostina!
- Uppbyggileg jóla-, afmælis- eða fermingargjöf
- Reikningurinn hentar foreldrum og öðrum velunnurum barna
- Tilvalinn fyrir þá sem vilja spara fyrir skólagjöldum, fyrstu íbúðinni eða bílnum
- Hentar þeim sem vilja gefa dýrmæta gjöf sem vex
- Leggur góðan grunn að framtíð barna og unglinga
Kynntu þér eiginleika Framtíðarreikningsins:
- Ber hæstu raunávöxtun innlánsreikninga
- Engin lágmarksinnborgun
- Verðtryggður
- Bundinn til 18 ára aldurs
- Kjör haldast óbreytt þó innistæða sé ekki tekin út við 18 ára aldur
- Hægt að semja um reglubundinn sparnað
- Hægt að stofna hvenær sem er fyrir 15 ára aldur barnsins
Veraldlegir hlutir eru oft fljótir að úreldast en bundinn reikningur með góðri ávöxtun gefur börnum gott start út í lífið. Kannski verður sjóðurinn lykillinn að fyrstu íbúðinni, bílnum, draumaferðinni eða skólagjöldum. Framtíðarreikningur Sparisjóðsins er ein besta leið sem völ er á til að ávaxta peninga barnanna.


