EINSTAKLINGAR
Áskriftarreikningur
Áskriftarreikningur er innlánsform sem hentar þeim sem vilja stunda reglubundinn sparnað og njóta góðrar ávöxtunar án nokkurs kostnaðar. Reikningurinn er hávaxta reikningur, bundinn til 60 mánaða og verðtryggður. Áskriftarreikningur er sérstaklega góð leið fyrir þá sem þurfa aðhald við langtímasparnað.
Kostir reglubundins Áskriftarreiknings:
- Þú sparar þá upphæð sem þér hentar, ekkert lágmark
- Áskrift veitir aðhald við langtímasparnað
- Þeir sem spara reglulega búa í haginn fyrir ókomna framtíð
- Hægt er að hækka eða lækka mánaðarlegan sparnað ef þörf er á
- Enginn kostnaður ef skuldfært er af reikningi hjá Sparisjóðnum
- Hægt er að skuldfæra af kreditkorti, en þá leggst 1,5% kostnaður ofan á
- Engin gengisáhætta verðbréfa
- Engin umsýsluþóknun
- Vextir leggjast inn á reikninginn um áramót og eru þá lausir til útborgunar
- Áskriftarreikningurinn er verðtryggður og ber góða og örugga ávöxtun
- Hægt er að fylgjast með stöðu reikningsins í Heimabankanum
Ef þú vilt nánari upplýsingar um Áskriftarreikning Sparisjóðsins getur þú sent okkur fyrirspurn, haft samband við Þjónustuver í síma 421 6600 eða leitað upplýsinga hjá þjónustufulltrúum.
Sjá vaxtatöflu innlána Sparisjóðsins hér.


