EINSTAKLINGAR
Hraðbankar
Í Hraðbönkum Spaprisjóðsins getur þú gert eftirfarandi:
- Tekið út peninga af debet- og kreditkortareikningum
- Fengið yfirlit af debetkortareikningum
- Millifært af debetkortareikningi inn á alla reikninga
- Greiðslukort Sparisjóðsins veita þér skjóta og örugga þjónustu út um heim allan
Nokkur góð ráð varðandi notkun á greiðslukortum:
- Gættu þess að rispa ekki né beygja kortið
- Geymdu kortið á öruggum stað
- Leggðu PIN-númerið á minnið
- Gefðu aldrei öðrum upp PIN-númerið og geymdu PIN-númerið aldrei með eða hjá kortinu sjálfu
- Geymdu allar kvittanir af kortanótum og berðu þær saman við úttektaryfirlit
- Tilkynntu strax til Sparisjóðsins eða til kortafyrirtækis um glatað eða stolið kort
Gagnlegar ábendingar sem hafa ber í huga við notkun hraðbanka:
- Hafðu kortið tilbúið þegar röðin kemur að þér, ekki fara að leita að því þá
- Byrgðu sýn annarra þegar þú slærð inn PIN-númerið og þegar þú tekur við peningum
- Í sumum tilvikum getur verið betra að stinga korti og peningum strax á sig og telja þá seinna á öruggum stað
- Við notkun á hraðbanka í lokuðu rými notar þú kortið til að opna en athugaðu að einhver getur fylgt þér inn þegar opnað er
- Fáðu uppgefið hjá Sparisjóðnum eða kortafyrirtækinu hver er hámarksúttekt á dag
- Víða erlendis hefur þú val um nokkur tungumál við afgreiðslu úr hraðbönkum


