Með Heimabankanum er hægt að sinna bankaviðskiptum í gegnum Internetið, hvort sem er heima, í vinnunni eða erlendis.
Tenging
Til að fá Heimabankann þarftu að hafa aðgang að Internetinu. Sparisjóðurinn úthlutar notandanafni, lykilorði og leyninúmeri. Einnig færðu Auðkennislykil til að tryggja öryggi þitt í Heimabankanum og þá getur þú hafið bankaviðskipti á Netinu. Hér finnurðu frekari upplýsingar um Auðkennislykilinn.
Miklir notkunarmöguleikar
Auk upplýsinga um Sparisjóðinn og þjónustu hans þá getur þú sinnt öllum venjulegum bankaviðskiptum í Heimabankanum.
Greiðslur
- millifærslur milli reikninga
- erlendar millifærslur
- greiðsla gíróseðla
- greiðsla greiðsluseðla
- greiðsla "ógreiddra reikninga"
- vistun á reglulegum greiðslum
- umsókn um beingreiðslur
- hleðsla á GSM-frelsi
Yfirlit
- reikninga
- greiðslukorta
- færslna í Heimabankanum
- fyrir skattframtal
- yfir stöðu skuldabréfa
- yfir stöðu lána hjá LÍN
Verðbréf
- settu upp þitt eigið eignasafn og fylgstu með stöðunni í Heimabankanum
- yfirlit og gengisþróun hlutabréfa
- yfirlit og gengisþróun sjóða
- upplýsingar um tilboð og viðskipti beint frá Nasdaq OMX Ísland
Stillingar
- Veldu þín eigin nöfn á reikninga og stjórnaðu í hvaða röð þeir birtast
- Stilltu hvaða upplýsingar þú vilt hafa á upphafssíðu Heimabankans
- Breyttu lykilorði
- Fáðu tilkynningar með tölvupósti eða SMS skilaboðum:
- um stöðu reikninga
- um stöðu greiðslukorta
- um innborgun launa
- um færslur yfir ákveðinni upphæð
- ef reikningur fer á FIT (úttekt fram yfir heimild)
- ef innistæða reiknings fer undir lágmarksupphæð
Notendur
Heimabankinn er fyrir alla viðskiptavini Sparisjóðsins og með því að nota hann fæst betri yfirsýn yfir viðskipti við Sparisjóðinn. Heimabankinn er auðveldur í notkun og gefur tækifæri til að sinna bankaerindum þegar hentar.
Aðstoð
Það eina sem þarf er aðgangur að Internetinu og notandanafn og lykilorð í Heimabankann. Ef einhverjir erfiðleikar koma upp við notkun Heimabankans er sérstakur hjálparhnappur á síðunum en einnig má hringja í síma 569 0200. Auk þess er starfsfólk Sparisjóðsins ávallt reiðubúið til aðstoðar.
Sæktu um heimabankann hér.
Gefðu öðrum umboð í Heimabankanum þínum hér.
Skoðaðu Kennslubankann hér og lærðu allt um það hvernig heimabankinn virkar.


