Skilmálar yfirdráttarlána

Skilmálar Sparisjóđsins í Keflavík um yfirdráttarlán


1. gr.
Skilmálar ţessir um yfirdráttarlán eru settir á grundvelli tékkalaga nr. 94/1933. Í 4. gr. laganna segir:

„Útgefandi skal hafa til umráđa fé hjá greiđslubankanum, er honum sé heimilt, samkvćmt samningi viđ greiđslubankann, ađ ráđstafa međ tékkum.“

Reikningseiganda er ţví ávallt skylt ađ hafa til umráđa nćgjanlegt fé hjá greiđslubankanum sem hann hyggst ráđstafa af tékkareikningi sínum. Međ samningi um yfirdráttarlán heimilar Sparisjóđurinn í Keflavík frávik frá lagareglunni međ ţeim skilmálum sem hér greinir.

2. gr.
Sparisjóđnum í Keflavík er heimilt ađ segja yfirdráttarláni og heimild til yfirdráttar upp skilyrđislaust án fyrirvara hvenćr sem er eđa ógilda slíkt lán eđa heimild sjálfkrafa vegna minnkandi lánstrausts lántakanda. Sparisjóđurinn skal tilkynna reikningseiganda um uppsögn láns eđa heimildar, sé ţađ mögulegt, en slík tilkynning er ekki gildisskilyrđi uppsagnar.

3. gr.
Međ sama hćtti og greinir í 2. gr. er Sparisjóđnum í Keflavík heimilt hvenćr sem er ađ lćkka yfirdráttarheimild reikningseiganda. Tilkynna skal um lćkkunina, sé ţađ mögulegt, en slík tilkynning er ekki gildisskilyrđi fyrir lćkkun yfirdráttarheimildar.

4. gr.
Komi til uppsagnar yfirdráttarheimildar eđa lćkkunar hennar er reikningseiganda ţegar í stađ skylt ađ greiđa inn á viđkomandi tékkareikning í Sparisjóđnum í Keflavík nćgjanlegt fé svo reikningurinn standi á núlli eđa í ţeirri fjárhćđ yfirdráttar sem Sparisjóđurinn heimilar. Ađ öđrum kosti gilda almennar reglur um óheimilan yfirdrátt á tékkareikningi, sbr. 4. gr. tékkalaga og ákvćđi 2. ml. 5. gr. skilmála ţessara.

5. gr.
Reikningseiganda er óheimilt ađ ráđstafa hćrri fjárhćđ af tékkareikningi sínum en sem nemur samningsbundnum yfirdrćtti, sbr. 4. gr. tékkalaga. Sé fjármunum ráđstafađ umfram heimild mun Sparisjóđurinn í Keflavík innheimta skuld sem ţannig myndast eftir almennum leiđum, ţ.m.t. kostnađ vegna umframfćrslna (FIT). Reikningseigandi greiđir allan kostnađ af innheimtu skuldarinnar. Viđ ţćr ađstćđur er Sparisjóđnum einnig heimilt ađ gjaldfella yfirdráttarskuldina.

6. gr.
Viđskiptakjör, vextir og kostnađur af yfirdráttarlánum fara eftir samningi ađila og ákvörđun Sparisjóđsins í Keflavík hverju sinni.

7. gr.
Brot á skilmálum ţessum varđa gjaldfellingu og fyrirvaralausri uppsögn yfirdráttarheimildar. Sparisjóđurinn í Keflavík áskilur sér rétt til ađ tilkynna brot á 4. gr. tékkalaga til lögreglu, í samrćmi viđ 73. gr. laganna.