Halló krakkar!
Við systkinin Króni og Króna viljum endilega kynnast öllum krökkum - sniðugum strákum, sprækum stelpum og prakkaralegum pottormum. Við viljum nefnilega kenna ykkur að spara og passa vel uppá peningana ykkar.
Margt smátt gerir eitt stórt
Það er miklu sniðugra að safna fyrir einhverju sem ykkur langar virkilega í heldur en að eyða öllum peningunum um leið og þið eignist þá. Það finnst okkur að minnsta kosti. Með því að spara getið þið eignast hjól, hlaupahjól, bretti, skíði, skauta, bolta eða annað sem kostar peninga. Ef þið geymið peningana ykkar í Sparisjóðnum þá fáið þið vexti, en það þýðir að peningarnir vaxa og verða verðmætari. Við systkinin Króni og Króna vitum að þið eruð snjöll og sniðug og þess vegna eruð þið fljót að læra að það borgar sig að spara.
Það er leikur einn að spara
Króni og Króna vita fátt skemmtilegra en að fá fullt af krónum til að passa og þegar þið komið með sparibaukana ykkar í Sparisjóðinn þá fáið þið oft eitthvað skemmtilegt frá þeim systkinum.
Forsjálni í fjármálum
Því fyrr sem börn temja sér sparnað því betra. Þess vegna bendir Sparisjóðurinn foreldrum á að börn geta eignast eigin sparireikning. Með því að leggja krónurnar sínar inn á reikning stíga börnin fyrstu skrefin í átt til sparnaðar.


